Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Gunnar Örn Magnússon
  • Netfang: gunnaro1@internet.is
  • Símanúmer: 8476895
  • Annað: www.myspace.com/gunniprests

Könnun

Hvern kýst þú í nútíma hljómlist?

Klukkan

Roskilde...?

29. mars 2008 klukkan 17:42
Það kom upp sú hugmynd snemma á árinu að skella sér á Hróaskeldu í sumar. Eitthvað hefur viðhorf mitt til viðburðarins breyst. Ástæðan er sú að miðinn kostar íslendinginn heilar 29.000 kr.. takk fyrir pent! Fyrir þá sem ekki vita þá skilst mér að fyrir tæplega 5 árum þá kostaði þessi miði ekki nema 14 þús... það segir ýmislegt um hvernig íslendingar haga sér daginn í dag.. það stefnir allt í það að ég sé ekki

Ég hef aðeins verið að velta því fyrir mér eða öllu meira upplifað frekar en velt þessu fyrir mér en þannig er mál með vexti að ég skrapp upp í Súper nú í vikunni (fyrir ómentaða einstaklinginn þá e það Strax matvöru og þægindaverslun (convienence store)) ekki það að það að sú frétt sé merkileg en á leiðinni þá tel ég alveg mátulega að ég hafi fengið hvern einasta öndunarfæra sjúkdóm known to man! Enda ekki furða þegar mengunin í bænum hérna norðan meiri heldur en í Motor City, Detroit og nú fer ég ekki með fleipur neinar!
Maður hóstar 2x meira en venjulega og er svo þreyttur í augunum þegar maður er inn fyrir dyrakarminn kominn! Kannski málið að fá far næst eða kaupa sér bíl til að sleppa við þessi ónot....... andardráttur við hreina í loftræstingu í bíl er öllu skárri... haha

Bloggfærslurnar hérna hafa töluvert dalað enda ekki mikið að gerast... en ef fólk vill þá er ég til að taka myndir fyrir það ef mér gefst tími til. Ég er búinn að vera á þannig séð "fullu" að taka myndir (staðreyndir ekki sannar).

Eitt en! Fólki er fullkomlega frjálst að save-a þær myndir sem ég tek í tölvurnar sínar af flickr síðunni minni og nota þær og birta svo lengi sem það í almáttugs bænum tekur það fram hver tók þær.. meira fer ég ekki fram á! Langflestir gera þetta og taka fram hver tók myndina en þó ekki allir.. that's it 4 2day... Fyrir gamlar sakir ætla ég að dúndra mynd hingað og þar með vendi ég kvæði í kross og enda pistil minn þessa stundina!

Ef þið viljið tjá ykkur um ranga íslensku í notkun þá er mér slééétt sama! Au revoir

Fatboy slim!
Gunnar Örn Magnússon

Gleðibankinn

19. febrúar 2008 klukkan 16:49
Ég var á dögunum í RVK í starfskynning hjá nokkrum fyrirtækjum og var farið fyrir hönd MA.
Ég heimsótti RÚV, Ljósmyndastofu Erlings, Stúdíó Sýrland og EnnEmm auglýsingastofu. Allt saman var þetta mjög merkilegt, ég held ég eigi ekki eftir að vinna hjá neinum þeirra í framtíðinni en maður veit aldrei. Allra skemmtilegast verð ég að segja hafi verið Rúv, Erling og Sýrland. Merkilegasta sem ég varð þó vitni að og þá er ég ekki að tala um þegar ég sá Ragnhildi Steinunni í RÚV heldur herbergið eldvarða, rakavarða og læsta hjá Stúdíó Sýrlandi. Þar var að finna allar upptökur og þá meina ég original upptökur af öllu íslenska efni sem tekið hefur verið upp. Ekki er hægt að tryggja innihald herbergisins því það telst ómetanlegt.

Nenni ekki að skrifa um þetta.... ég er í letikasti!
Ég nenni ekki skóla, hreyfa mig, vinna! You name it! Best er að sofa og borða!
Peace Out!
Gunnar Örn Magnússon

Carmina... Boorana!

22. janúar 2008 klukkan 16:30
Ég var fenginn til að skrifa Carminugrein Olgeirs og Baldurs. Það er ekkert lítið erfit... ég er gjörsamlega heftur af ritstíflu þessa stundina. Baldur sá um að skrifa mína og hún er grátlega fyndin sko, þvílíkur penni sem drengurinn er. Hann er 40 árum of seinn á þessum tímum. Ég fékk carminu myndina mína nú á dögunum og ég er mjög sáttur með þá mynd og ekk var hún dýr.
Ég heyrði eitthvað það allra heimskulegasta en jafnramt það fyndnasta nú á dögunum. En Baldur og ég vorum að ræða um veðurspár og hann hélt alltaf að þegar veðurmaðurinn talar um "Það er rigning í grennd"... Þá ályktaði Baldur sem svo að "grennd" væri ekki nálægð heldur staður og fannst afar leiðinlegt að þar skyldi alltaf rigna.
Í prófatíðinni fórum við einnig í torfærur upp í fjall og keyrðum alla leið upp að Fálkafelli, tær testesterón stund!
Það sem er að angra mig núna er netið... og það að ég er ekki með hleðslutækið af myndavélinni minni og því er ég ekki fær um að taka myndir þessar stundirnar.. fullt af góðum momentum búin að líða hjá en vonandi verða þau fleiri... enda er líka pínu bömmer að allir eru að læra en ekki ég því ég er búinn í prófum og því er ekkert að gera fyrir mig.. Endilega checkið á myspace ef þið viljið eittvað við mig segja ef þið náið ekki af mér eða eitthvað... ég er horðin alger hóra varðandi þennan fjanda.. 3 myndir nýjar á flickr en samt pínu gamlar endilega skoðið þær... see you folks around...
Kommentið endilega... Ciao

p.s. ég var einnig að lesa nú rétt í þessu að leikarinn Heath Ledger sem lék í Knights Tale, Brokeback Mountain "overdozaði" og er því ekki lengur á meðal lifenda...
Gunnar Örn Magnússon

2007... goodyear

31. desember 2007 klukkan 15:57
Eitt besta ár so far... ég upplifað margan gleðskapinn og kynnst mörgu skemmtilegu fólki.
Vill þakka fyrir mig innilega og óska öllum góðs komandi árs. Við sjáumst nú vonandi öll aftur á komandi ári og reynum að toppa þetta ár.... sem verður vart hægt en það má alltaf reyna!
Adios..2007!



p.s. komment vel þegin!
Gunnar Örn Magnússon

2012 og annað kjaftæði!

27. nóvember 2007 klukkan 14:11
Þessa stundina er ég fastur með hausinn upp í einhverju klafaskýi. Ég veit ekki alveg upp á hár af hverju en svona er það nú. Ég er næstum kominn með upp í kok að blogga en ég hef of miklar pælingar til að láta þær óáreittar. Ég ætla alls ekki að vera banginn við það að fleygja þeim hérna á síðuna.

Fyrsta: Fyrir þá sem ekki vita þá er árið 2012 eitthvað voða stórt. Margir telja að heimsendir verði þá eða einhverjir stórbrotnir hlutir munu gerast! T.d. eru trúarhópar og aðrir apakettir sem bíða í ofvæni eða í stressi eftir þessu ári og sitja og lesa bækur og reyna finna einhverjar bjánalegar samsæriskenningar um árið í stað þess að drulla sér út á vinnumarkaðinn eða gera einhvern andskotann annan af sér og skila einhverju til baka til samfélagsins. Ég er ekki reiður út í þetta fólk enda engin ástæða til, finnst bara að þau megi fara hugsa sinn gang.
Svo er pælingin sú hvað ef það verður ekki heimsendir verðum við hissa eða þau? Og ef ekkert verður úr þessu hvað verður þá þetta stórbrotna sem mun gerast og af hverju endilega 2012. EFtir hvaða tímatali er farið? Er alltaf farið eftir tímatali vestrænna þjóða, þykir það svona hentugast fyrir meðalgreindann manninn að skilja. Nei en samt þá skilst mér að þetta sé eitthvað tengt mönnunum Maja eða hvað það nú heitir. Hentugt samt að geta notað 2012 í vestrænu dagatali en ekki ár Drekans eða því um líkt!
Ég held, svo ég geri nú en frekar lítið úr þessu fimbufambi að Apple muni gera einhvern fjandann af sér á þessu ári. Yfirleitt halda þeir öllu leyndu og álíka en þarna mun þessi stórbrotni atburður eiga sér stað. Þá gefa þeir út "EyePod".. Myndin í augað og hljóðið beint í eyrað og mánaðarlega kíkiru til háls, nef og eyrnalæknis til að hlaða hann! Úti í USA mun hann kosta ca. 90 ísl. krónur en á Íslandi mun standa "leitið tilboða!".

Fáar pælingar í viðbót kem með meira þegar á við!
Gunnar Örn Magnússon

Geir Ólafs...

29. október 2007 klukkan 22:59
Ég þoli hann ekki eins og ég hef minnst á áður, en mér var bent á ágætis lesningu sem er skrifuð af Sverri Stormsker. Vildi bara pósta þessu hér því að þetta er hin tærasta snilld.
Hann á fullan höfundarrétt á þessu svo það sé tekið fram.... þetta er löng lesning en ég mæli eindregið með því að fólk lesi langleiðina af þessi því að þetta gæti vel verið satt, taka samt fram að það er það ekki.
Einnig var ég að heyra skömmustulegar sögur af honum.. en ég gæti átt hættu á kæru svo að við ræðum þetta ekki formlega...

Sjálfur Geir Ólafs stórsöngvari og megatöffari, sá flottasti síðan Óli blaðasali var og hét, er staddur á Ölveri á árlegri karíókíkeppni leigubílstjóra. Hann er í kolsvörtum stífpressuðum battistini jakkafötum að hætti Frank Sinatra og í vandlega fráhneppri hvítri silkiskyrtu með kragann upp að eyrum að hætti Elvis Presley. Brúnkukremsborið brjóstið skartar gullkrossi og nýtur sín vel með öllum sínum gríðarlega kynæsandi bringuhárum, að hætti Tom Jones. Ólýsanlega kúl. Mjallahvítt hárið lýsir upp  skammdegið sem alltaf ríkir á þessum stað og vel snyrt 5 daga skeggið hefur svo sterk áhrif á kynhverfa karlmenn yfir sjötugt að þeir kikna í hnjáliðunum og roðna í vöngum. Hann gengur gæalega að barnum að hætti Dean Martin og segir glaðhlakkalega við afgreiðsludömuna um leið og hann snöggstrýkur hárið frá enninu:

- “Heyrðu elska, á ég að taka hérna smá stepp fyrir þig uppá borði? Ég get líka hlaupið í sömu sporum ef þú vilt?”

-  “Til hvers? ”

Geir blikkar hana: “Nei bara þú veist, hafa smá gaman af lífinu. Veistu ekki hver ég er?”

- “Nei. Og langar ekki að vita´ða.”

- “Látt´ekki svona elska. Auðvitað veistu hver ég er. Tveir plús tveir eru tveir og snilld plús sexapíl er Geir. Einhverju nær?”

Hún óþolinmóð: “Nei.”

 - “Kannastu við Frank Sinatra?”

- “Já. Só?”

Geir blikkar hana gæalega: “Ég er Frank Sinatra Íslands.”

- “Einmitt. Ertu ekki frekar Austin Powers Færeyja?”

- “Róleg gæska. Hold your whores.”

- “Það er “hold your horses” ef það var það sem þú varst að reyna að segja.”

- “Kannastu við My Way með Frank Sinatra?”

Hún þreytulega: “Úffff.”

Geir hallar sér fram og segir í trúnaði: “Ég söng það.”

- “Einmitt. Það er nefnilega allsekki til sá drykkjurútur í veröldinni sem hefur ekki einhverntíma sungið það.”

- “En elska. ÉG er edrú.”

- “Það getur ekki verið. Ég verð að biðja þig um að vera úti ef þú ætlar ekki að kaupa neitt og ef þú ætlar bara að vera með eitthvað fyllerísrugl.”

- “Sona sona ljúfan. Við skulum vera alveg róleg sko. Ég er bláedrú. Er búinn að vera edrú í lengri tíma sweetheart.”

- “Ja hérna. Hvernig varstu eiginlega þegar þú varst fullur?”

- “Eru ekki bara allir í góðum fíling dúllan mín? Láttu mig fá hérna einn íste með sykri og tveimur sítrónusneiðum og mjólk og klökum.”

Hann leitar í öllum vösum og segir:

- “Heyrðu bíddu aðeins gæska, slepptu ísteinu.”

- “Ætlarðu þá bara að fá sykur og mjólk og sítrónusneiðar og klaka?"

- “Nei þú mátt líka sleppa mjólkinni og sítrónusneiðunum.”

- “Ætlarðu þá bara að fá sykur og klaka?”

- “Nei þú mátt sleppa sykrinum líka.”

- “Og hvað? Ætlarðu bara að fá klaka? Á ég kannski að sleppa glasinu líka? Þú vilt kannski bara fá klakana beint í lófann?”

- “Neinei, halda glasinu og klökunum sko.”

- “Aðskildu?”

- “Nei semsé fá klaka í glas og kannski smá vatn útí. Þetta er miklu betra fyrir hálsinn en þetta tesull og viský og allur þessi óþverri. Við stórsöngvararnir verðum að hugsa um hálsinn og heilsuna og svo var ég búinn að gleyma því að ég er á bíl.”

Hún hristir hausinn: “Einmitt. Og hvað kemur það málinu við?”

 - “Nei bara...það er ekki allir sem eru á svona rosalega flottum bíl einsog ég skal ég segja þér dúllan mín. Ég og Jón Ásgeir erum einu greifarnir sem ökum um á svona bíl. Nýjasta týpan af Grand Lord Dear God Range Rover. Kostar jafn mikið og 10 hæða blokk í Arnarnesinu.”

- “Það eru engar blokkir í Arnarnesinu.”

- “Já en þú veist hvað ég á við. Meiraðsegja olíufurstarnir í Danmörku og Finnlandi og öllum þeim Asíulöndum hefðu ekki efni á svona kagga.”

- “Danmörk og Finnland tilheyra Skandinavíu. Ekki Asíu.”  

- “Já en þú veist hvað ég á við baby. Manni getur nú vafist pungur um tönn.”

- “Þú meinar tunga um tönn?”

- “Já ekki er hún betri. Svo þú ert svona svakalega hress segirðu. Heyrðu blómið mitt, ég verð aðeins að hringja hérna í góða vinkonu mína, hana Nancy Sinatra, þú veist, dóttir Frank Sinatra, og það er rosalega áríðandi að þú biðjir liðið hérna að hafa þögn í salnum á meðan vegna þess að ég hef aldrei talað við hana áður.”

- “Hvernig getur hún verið góð vinkona þín ef þú hefur aldrei talað við hana áður?”

Geir lyftir upp hægri hönd og pressir saman vísifingri og þumalfingri:

- “Við erum Svona klós....þú veist, SVONA klós andlega jafnvel þó við höfum aldrei hist og aldrei talað saman. Þú skilur þetta þegar þú þroskast darling. Segðu nú þessum drulludelum hérna að hafa sig hæga og þegja aðeins því að Geir Ólafs sé að fara að hringja í Nancy Sinatra.”

- “Heldurðu að ég geti farið að segja fólkinu hérna sem er að syngja og skemmta sér að hafa hljóð afþví að einhver holgóma leppalúði þurfi að hringja í einhverja kellingartusku?”

 - “Ekki vera dónaleg elska. Kurteisi kostar ekkert. Segðu nú þessum sauðdrukknu jólasveinum hérna ð halda sér saman rétt á meðan ég hringi í hana Nancy. Þú verður að skilja alvöru málsins dúfan mín.”

- "Alvöru? Hvaða alvöru? Þetta er hlæjilegt. Ef þú þarft að hringja þá geturðu bara farið út eða inná klósett eða eitthvað einsog annað fólk.”

- “Veistu ekki hver ég er?”

- “Þú ætlar ekki að skilja þetta. Mér gæti ekki verið meira sama um það hver þú ert. Lögreglan fær að vita hver þú ert ef þú ferð ekki að haga þér einsog maður.”

- “Lögreglan veit örugglega hver ég er einsog allir aðrir landsmenn svo það er ekkert mál englakroppurinn minn.”

- “Já þú ert örugglega meiri góðkunningi hennar en þessarar Nancyar Bíafra.”

 - “Hún heitir Nancy Sinatra og er mikil listakona einsog ég."

- "Ert þú listakona?" 

- "Við skulum nú reyna að tala rétt mál elska og tala áður en við hugsum.”

- “Þú meinar hugsa áður en við tölum.”

- “Akkúrat. Það er nákvæmlega það sem ég var að segja trippið mitt.”

- “Ja hérna hér. Ég nenni ekki þessu rugli.”

- “Það er bara kjaftur á minni. Flott hjá þér sykurpúðinn minn. Um að gera að standa uppí flottu hárinu á frægum mönnum.”

Hann rennir höndinni gæalega frá enni og alveg aftur á hvirfil.

- “Þetta er ekkert mál baby. Ég hringi bara í hana hérna við barborðið og læt sem ég sé bara einsog hver annar venjulegur maður. Stórir andar verða að geta komið niður til almúgans og deilt með þeim kjörum. Mér, frægum stórsöngvaranum, munar ekkert um að brjóta brodd af kloflæti mínu og hringja í heimsfræga konu hérna við skítugt barborð út í rassgati innan um sauðsvarta lúsera. Svoleiðislagað gera bara miklir andans menn.”

Hann tekur upp gemsann og sér að það er engin innistæða.

- “Heyrðu krúttið mitt, ég er hérna með 600.000 króna farsíma af fjórðu kindaslóð og ...”

- “Kynslóð meinarðu?”

 - “Já einmitt, og hann er svo rosalega fullkominn að ég hef ekki getað sett mig almennilega inní það hvernig hann virkar. Ég meina, ég get notað hann sem rakvél og leysergeislabyssu en ég hef ekki alveg komist uppá lagið með að hringja úr honum. Þú skilur djásnið mitt. Ertu ekki með einhvern skífusíma hérna sem ég get hringt úr dúllan mín?”

Hún skellir síma á borðið.

Hann blikkar hana: “Thank´s honey. Þú stendur þig alveg ljómandi í því að umgangast fræga menn.”

Hann tekur nokkur steppspor að hætti Sammy Davis og hringir.

 

- “Halló, nei bleeeeesuð, er þetta Nancy Sinatra?”

Nancy hagræðir sér í rúminu, tekur gervitennur úr vatnsglasi á náttborðinu og stingur uppí sig og fær sér svo vænan slurk úr glasinu.  

- “Já, so what? Hvaða fífl er að vekja mig upp um miðja nótt?”

- “Um miðja nótt? Klukkan er nú bara 10 um kvöld. Eru ekki allir í stuði?”

- “Þú átt það greinilega sameiginlegt með klukkunni þinni að vera soldið á eftir. Klukkan hér í USA er 3 um nótt asninn þinn.”

- “Nú! Ég vissi það ekki. En heyrðu, ég heiti Geir Ólafs, þú veist, aðal söngvarinn á Íslandinu. Veistu ekki hver ég er?”

- “Hvað heitirðu segirðu? Gay Lovers? Gætirðu dýpkað röddina um svona fjórar áttundir svo að mannseyrað greyni hana. Ég er ekki hundur.”

Geir dýpkar röddina einsog hann getur og hljómar núna ekki ólíkt Lisu Simpson:

- “Er þetta ekki allt annað líf? Sko ég heiti Geir Ólafs, ekki Gay Lovers, og ég er frá Íslandinu, sama landi og Björk.”

- “Jerk?” 

- “Nei Björk, þú veist stelpan í svansbúninginum með kínarúllurnar í hárinu sem lítur út einsog grænlendingur og talar einsog 5 ára mongólíti.”

- “Og hvað? Er hún tvíburasystir þín?”

- “Nei nei, það er ekkert svoleiðis sko...það er bara...”

- “Um hvern djöfulinn ertu að tala? Reyndu að ropa þessu út úr þér. Og afhverju talarðu einsog Andrés Önd? Ertu að reyna að fá mig til að tala inn á teiknimyndir?”

- “Nei það er ekkert svoleiðis sko...ég bara...”

- “Bara hvað? Hvort er ég að tala við kall eða kellingu?”

- “Þú ert að tala við kall sko. Alvöru kallmann. Þann flottasta á Íslandi og þótt víðar væri leitað.”

- “Afhverju talarðu þá einsog kelling?”

- “Uuuu...Manstu eftir snjóþvegnu níðþröngu gallabuxunum í gamla daga sem skárust uppí klo...”

- “Ókey. Ég skil. Og hvern fjandann viltu motherfucker? Örorkubætur?”

- “Nei, ég er með svona meðmælabréf frá Ólafi Ragnari Grímssyni forseta sem ég skrifaði sjálfur og hérna....”

Nancy skrúfar á sig gervifót.

“Og hvaða hlandauli er það?”

- “Hann er svona forseti íslenska níðveldisins og er kallaður Óli grís.”

 - “Lék hann í Grease? Hvað ertu að reyna að segja?”

- “Nei bara þú veist, afþví að þú ert nú dóttir hans pabba þíns og af því að það er búið að grafa hann vegna þess að hann dó og svona, þá langaði mér þú veist bara að athuga hvort þú værir ekki til í að koma uppá Íslandið og láta sönginn hljóma, þú veist, taka t.d. lagið Something Stupid og allt það.”   

- “Something stupid er einmitt það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég er að tala við Þig. Þú hlýtur að vera þokkalega þroskaheftur! Ertu ljóska?”

- “Já reyndar, en þú veist, ég er þú veist svona söngvari, alveg obboslega góður og frægur söngvari og ég er búinn að skrifa á svona allskonar meðmælapappíra fyrir Geir Haarde forsetisráðherramann afþví að mér langar svo að setja upp svona show með þér.”

Nancy tekur gerviauga úr náttborðsskúffunni og treður því í tóftina.

- “Og hver í helvítinu er þessi Gay Hard On? Einhver elskhugi þinn sem er alltaf með standpínu? Ég hlusta ekki meira á þetta klám!”

- “Nei hann er svona kallinn sem ræður öllu hérna á Íslandinu fyrir utan Jón Ásgeir í Bónus.”

- “Og hvar kemur þessi Jón AssGay með Bóner inní myndina? Um hvern andskotann ertu að tala helvítis klámkjafturinn þinn? Fæddistu nálægt kjarnorkuveri? Ertu með tvo tóma hausa? Þú veður úr einu í annað og segist svo vera söngvari en sándar einsog stillimyndin í sjónvarpinu. Er eitthvað að hjá þér Gay?”

- “Geir. Ég heiti Geir Ólafs.”

- “Ókey Grey Ölóðs eða hvern djöfulinn sem þú heitir. Reyndu að æla því út úr þér hvað þú ert að pæla.”

Hún snýtir sér hraustlega í lakið og fyllir ranann af tóbaki.

- “Nei málið er sko að ég er búinn að vera að reyna að ná í þig í 10 ár og....”

- “Og hvað? Kanntu ekki að fletta upp í símaskrá?”

- “Jújú, ég kann alveg að fletta svona með þumlinum og það er ekkert mál sko, en ég hef aldrei getað botnað neitt í þessari bók og hef ekkert gaman af henni. Frekar slappur söguþráður og þetta er eiginlega bara einhver nafnaruna og vitleysa einsog í Njálssögu. En það var sko leigubílstjóri sem gaf mér númerið hjá þér og hann hafði hitt þig á flóamarkaði þarna úti í útlandinu þar sem þú býrð. Og núna er ég semsé loksins búinn að fá númerið hjá þér.”

- “Einmitt. Til hamingju Einstein.”

- “Ég heiti ekki Einstein. Ég heiti Geir. Þú ert að örugglega að rugla mér saman við einhvern annan söngvara.”

Í salnum er einhver karíókíhetjan að ljúka lagi og það er mikið klappað.

 Geir öskrar fram í sal: “Má ég vinsamlegast biðja ykkur um að vera ekki með þennan djöfulsins hávaða hérna. Ég er Geir Ólafs og ég er að reyna að tala við sjálfa Nancy Sinatra!”

Renglulegur brennivínsleginn gleraugnaglámur öskrar á móti:

- “Einmitt. Og ég er Tarzan. Vertu úti að kjafta í símann helvítis hvíti niggarinn þinn. Þú ert ekki á bókasafni!”

Geir öskrar: “FUCK YOU ASSHOLE!”

Nancy öskrar: “FUCK YOU TOO!”

Geir afsakandi: “Nei fyrirgefðu, ég var ekki að tala við þig. Ég var sko að tala við einkaflugmanninn minn. Við erum að fljúga hérna yfir Geysi og hann gleymdi að gefa stefnuljós.”

- “Akkúrat. Segðu honum að gleyma ekki líka að setja rúðuþurrkurnar á. Í guðanna andskotans bænum reyndu að koma þér að efninu apakötturinn þinn.”

- “Já ég heiti semsé Geir Ólafs, allsekki Gay Lover, og ég var svona að pæla....”

- “Hvaða andskotans máli skiptir hvað þú heitir bjáninn þinn? Ég er að spurja þig hvað þú Viljir. Viltu að ég stafi þetta oní þig?”
 

- “Já það væri nú margt vitlausara en það ef þú hefðir tíma, en ég var semsé svona að pæla í því sko hvort þú værir ekki til í að taka lagið hérna á Íslandinu sko.”

- “Og afhverju í andskotanum ætti ég að gera það Gay? Ég er ekkert í svona rugli. Veistu hvað ég er gömul? Ég var að koma úr krufningu.”

Hún setur á sig stálgráa negrahárkollu úr sirka 20 punda girni og tekur inn lúku af blóðþrýstingstöflum sem hún skolar niður með rakspíra.

Geir tekur eftir að afgreiðsludaman er að hlusta og skiptir aðeins um gír. Setur í fjórða:

- “Sko aldur er ekkert vandamál Nancy mín. Ég hef nú verið með eldri konum en þér á föstu og það hefur alltaf svínvirkað bara ef maður sullar nógu miklu af steinolíu á rétta staðinn sko. (Blikkar afgreiðsludömuna töffaralega). Ég meina, ekki kvartaði amma, og hún kallaði nú ekki allt ömmu sína. Enda var hún helvíti langt niðri kellingin. Six feet under. Þannig að það er ekki málið þó þú sért kannski komin með tvær til þrjár broshrukkur Nancy mín. Fancy Nancy. Hahahaha. Fannst þér þetta ekki flott hjá mér? Ég er ekkert smá meiriháttar.”

- “Já, meiriháttar asshole!”

- “Ég kann líka að steppa uppá borðum og hlaupa í sömu sporum og meira að segja líka að strjúka hárið uppfyrir ennið. En heyrðu Sína fína, ég er búinn að auglýsa tónleika með þér í 7 ár í Árbæjarsafni og vildi nú bara svona kanna hvort þú værir ekki til í tuskið og svo gætum við kannski tekið smá snúning á eftir uppá hótelherbergi og svona og haft það næs. Ég er búinn að gera díl við Essó ef þú skyldir vera eitthvað þurr á manninn, þú veist hvað ég á við, ha. Það væri nú ekki ónýtt að fá að taka smá skrans á dóttur aðal bossans. Úr því að Bossinn er dottinn uppfyrir þá verður maður nú að gera sér dóttur hans að góðu. Erða Díll?”

- “Ég skil ekkert hvað þú ert að segja. Þú andar eins og físibelgur í símann. Ertu með asma?” 

- “Neinei, það er bara einhver flensa að ganga.”

 - “Geðveiki?”

- “Neinei. Veit það ekki. Sko ég er ekkert að reyna að teyma þig á eyrunum en ég bara veit að þú hefðir rosalega gaman af þessu. Ég var td að kaupa mér 280 milljóna króna Range Rover í B&L og ég er búinn að borga 35 krónur inná lyklakippuna sem fylgir bílnum og svo borga ég 150 krónur í næsta mánuði inná lyklana sjálfa þannig að þetta er nú allt að koma og ég gæti skutlað þér í Bláa Lónið, þú veist Blue Lagoon, það væri svona í stíl við Blue Eyes og svo er ég sjálfur kallaður Ice Blue. Pabbi þinn hann Frank megasöngvari hefði nú orðið hrifinn af því.”

Nancy ræskir sig og skyrpir vænni slummu í gardínurnar.

- “Hvaða andskotans Frank? Um hvern fjandann ertu að tala? Pabbi hét ekki Frank. Hann hét James Sinatra og vann á skurðgröfu. Heldurðu að þú sért að tala við dóttur hins hrútleiðinlega og rammfalska Frank Sinatra helvítis beinasninn þinn? Ertu eitthvað thick you bloody dick? Thick as a brick? Sick? Alnafna mín hún Nancy dóttir hans býr á einhverju elliheimili eða sambýli í New York. Ég bý í L.A. fáráðurinn þinn.”

Þögn. Geir hættir að anda einsog hvalur og horfir flóttalega í kringum sig og lækkar róminn aðeins. Er hugsi:

- “...Ókeyeyey...Ja-há...New York New York. Alright. Þetta er nú bara svona smá skyrmysingur, misskilningur meina ég, þú veist, svona smá tæknileg mistök. En heyrðu Nancy mín, hérna, úr því að mér ætlar aldrei að takast að ná í Nancy dóttur hans Frank heldurðu þá að þú værir þá ekki bara til í að koma uppá Íslandið og þykjast vera hún, af því að ég er nú búinn að auglýsa tónleikana árum saman og svona og fólk fer að fatta...ég meina halda, að ég sé eitthvað ruglaður. Ha? Hvað segirðu um það? Þú heitir hvort eð er Nancy Sinatra og þá væri ég ekkert að ljúga neinu, eða þannig, þó ég hafi náttúrulega kryddað það aðeins að ég ætti Range Roverinn. Erda díll? Ha? Humm. Nancy mín? Þú myndir náttúrulega borga flugmiðann og ég myndi borga vaselínið og steinolíuna og allt það? Svo gætum við skipt með okkur bensínkostnaðinum? Ha? Díll?”

Nancy teigar úr rommflösku og það lekur úr munnvikunum niðrá gervibrjóstin.

- “Heyrðu þú þarna gay eða gaylord eða geimvera eða gayvera eða hvað þú nú ert: Fuck you creap!  My boots are gonna walk all over you!!”

- “Ókey...en...”
 

- “Ókey Ó Gay. Er það skilið eða er það misskilið?”

- “Neinei, þetta var nú bara svona smá hugmynd sko. En ég held þá bara áfram að leita að Nancy Franksdóttir. Það er bara um um að gera að vera jákvæður og bjartsýnn. Ha? Það þýðir ekkert annað. Á ég að syngja fyrir þig My Way?”

 - “Over my dead body.”

Geir uppveðraður:

- “Í Alvöru? Það væri mér mikill heiður. Ég er alveg þaulvanur jarðarfararsöngvari. Er mjög oft beðinn um að syngja fyrir dautt fólk. Það er í rauninni minn aðal markhópur. Eina fólkið sem kvartar ekki.”

- “Því gæti ég trúað. En farðu nú að halda kjafti. Ég nenni ekki þessu froðusnakki. Er alveg búin að fá uppí kok.”

- “Ertu að meina að ég eigi ekki að syngja fyrir þig My Way?”

- “Go to Hell, Your Way! Piss off motherfucker!” Skellir svo fast á að síminn mölbrotnar.

- “Já heyrðu, ég athuga það. En veistu það að Franky boy var soldið óheppinn að því leiti að hann gat aldrei sungið eins og Ég, enda var aldrei skorið almennilega undan honum. Halló? Ertu þarna? Núnú...það hefur slitnað sambandið.”

Nancy strýkur á sér yfirvaraskeggið, kveikir sér í vatnspípu og muldrar fyrir munni sér: “Hvernig dettur þessum froski í hug að Mér, Nancy Sinatra, dóttur sjálfs Frank Sinatra, komi til hugar að fara upp á einhverja djöflaeyju á vegum einhvers snarruglaðs himpigimpis.”

 

Geir strýkur hárið snöggt aftur á hnakka og segir glaðhlakkalega við afgreiðsludömuna:

- “Jæja, þetta gekk bara alveg 100% darling.”

Hann lyftir upp höndunum og læsir saman lófunum.

- “Við erum þú veist SVONA klós einsog ég vissi, enda pabbi hennar gamall fjölskylduvinur rétt einsog Páfarotta og fleiri kynórar.”

- “Meinarðu Pavarottí og fleiri tenórar?”

 - “Nákvæmlega það sem ég var að segja. Þú ert greinilega soldið inní menningunni krúsíndúllan mín jafnvel þó þú vinnir á þessum ruslahaug. Sko Páfarotta og Dómínós og Carmella og allir þessir frábæru írösku aupersöngvarar, sko þetta voru alltsaman góðir fjölskylduvinir. Þetta voru alltsaman mjög góðir vinir mínir og vissu alveg hver ég var.”

Afgreiðsludaman dæsir:

- “Einmitt. Og vissi þessi vinkona þín Nancy Viagra líka hver þú varst?”

- “Hún Nancy? Nancy Fancy? Jájájájá, en ekki hvað? Hún þuldi upp þvílíkar ástarjátningar til mín að ég vissi hreinlega ekki hvert hún ætlaði. Hún er bara með mig gjörsamlega á heilanum. Lét dæluna ganga og vissi alveg nákvæmlega hver ég var. Hún er að pakka niður í töskur núna, alveg í skýjunum. Getur ekki beðið. Málið er semsé algerlega í höfn. Nancy fardalaus Hringdu nú fyrir mig á Stöð 2 baby og segðu gæunum þar að láta þjóðina vita að Geir Ólafs Stórstjarna sé búinn að redda Nancy Sinatra. Hún verði með tónleika í Þjóðminjasafninu næsta miðvikudag.”

Afgreiðsludaman hristir hausinn puffandi og segir á leiðinni inní eldhús:

- “Ef ég hringi eitthvað fyrir Þig þá verður það annaðhvort á lögregluna eða á lækni.”

Geir muldrar með sjálfum sér:

- “Djödlinn sjálfur mar. Hellíti munaði litlu mar að ég skyldi hafa náð í hana Nancyju. Ég var með rétta nafnið og rétta landið og allt. Það eina sem vantaði var að þetta væri rétta manneskjan. Þá hefði þetta verið komið. En það þýðir ekki að gefast upp. Þá er bara að skella sér til New....New....Uuuu...New-eitthvað. Bíddu nú við. Hvort sagði hún að hin rétta Nancy ætti heima í New Orleans eða New York...uuu.... ...eða New Dehli....eða var það New Sealand? Hmm....Jæja það skiptir ekki máli. Þessar borgir eru hvort eð er allar í Írak. Best að skella sér þangað í kósíheitin með fyrstu vél og þefa hana uppi. Mér mun pottþétt takast að komast uppá....hafa uppá henni.”
 

Hann togar skyrtukragann langt uppfyrir haus, tekur nokkur steppspor, strýkur snöggt yfir hárið og kallar fram í sal:

- “Halló! Halló gott fólk! Viljiði aðeins gefa mér hljóð. Viljiði sýna smá respect og stoppa aðeins þetta viðvaningsgaul ykkar í eina mínútu. Ég heiti Geir Ólafs einsog þið eflaust öll vitið rétt einsog hvert einasta mannsbarn í heiminum, og ég ætlaði bara að hryggja ykkur með því að hef ekki tíma til að troða upp í þessu fjósi hérna og heiðra ykkur lengur með nærveru minni því ég er að fara út í útlandið að ná í hana Nancy Sinatra.”

Einhver rauðþrútinn brennivínsberserkur öskrar:

- “Ertu örugglega að fara? Er það loforð?!”

Annar ennþá rauðþrútnari öskrar:

- “Geturðu nokkuð farið STRAX? Á stundinni?!”

 Þriðji, sá allra rauðþrútnasti öskrar:

- “Er ekki nafnið þitt skammstafað Gé.Ó.? Farðu endilega sem allra fyrst! GÓ!

Náungi sem liggur sofandi fram á borðið rís upp við dogg og kallar á Geir:

- “Wake me up before you go G.Ó.”

Geir hefur upp raust sína og syngur hástöfum tvær setningar:

“I did it My Way. I´m gonna Fly aWay.”

Labbar síðan gæalega á dyr. Salurinn syngur hástöfum á eftir honum:

- “Ó please go Far aWay. Við fögnum Vei Vei!”

Gunnar Örn Magnússon

Hallelujah

02. október 2007 klukkan 00:02
Hausinn á blogginu er dreginn af nafninu af laginu eftir Leonard Cohen í flutningi með Jeff Buckley. Þetta er alveg búið að vera lagið hjá mér síðustu vikur sko...úff sem það er gott sko.

En til að minnast þess þá bloggaði ég síðast 10. ágúst, og hefur töluvert mikið gerst á þeim tíma. Helst ber að minnast á skemmtilegustu 14 daga lífs míns en þá fór ég til Rhodos í útskriftarferð. Myndirnar úr þeirri ferð má sjá á flickr. Þetta var svo mikil snilld því að maður kynntist bunch af fólki og skemmti sér vel með þeim.

4.Bekkur byrjaði og er ég hæstánægður með bekkinn. Busunin var tær snilld gæti gert það aftur og aftur og busarnir er margir hverjir snillingar þessi grey. En svona var maður víst.. það er til sönnun fyrir því á myndrænu formi (þið vitið hvaða mynd er átt við).
Helsta ástæðan fyrir letinni í mér hvað varðar þetta blogg er sennilega bara vegna þess að ég er alltaf á flickr og að vesenast í myndun og þess háttar. Það verða litlar pælingar og lítið um útúrdúra í þessu bloggi.
Held ég hafi þetta stutt um sinn en ég ætla reyna blogga aftur næsta sunnudag þegar eitthvað hefur gerst í þessari viku.

Góða nótt, eða góðan eftirmiðdag.. fyrir þá sem eru á bahamas
Gunnar Örn Magnússon

Sieg Heil!

10. ágúst 2007 klukkan 01:09
Kominn frá þýskalandi og danmörku og búinn að eyða drjúgt sko! keypti SLATTA!
En já efast um að nokkur maður nennir að lesa hvað ég gerði ef þið viljið vita þetta þá er bara spjalla við mig en ég reyni bráðum að dúndra inn myndum sem ég tók á mína frábæru og glænýju Canon EOS 400D!
(bráðum kemur www.flickr.com/gunniprests læt fólk vita!)
Því oft segja myndir meira en 1000 orð ef ekki meira... þetta er alveg nýtt hobbý hjá mér  ljósmyndun þ.e.a.s. og verið svo væn að leyfa mér að taka myndir af ykkur og vera þolinmóð ef ég verð alveg sokkinn í þessu... þetta er geggjað sko!

En nú kemur að gagnlega part þessa blogs! Ég ætla núna að taka mig rækilega til og haugdjöfuldrulla yfir ógeðsla skítapakkið sem stórnar hinum ágæta bæ sem kendur við eyri þar sem akrar voru (held ég).. Ég er að sjálfsögðu að tala um æðsta fólk bæjarstjórnar á Akureyri..sko ég kýs sama lið og þau eru í XD... en fyrr má nú vera þessa andskotans fasismi... ég veit bara ekki í hvorn fótinn ég á að stíga.. Til að "bring you up to date" þá mátti fólk á aldrinum 18-23 ekki tjalda um versló bara vegna aldurs! (flestir vita af hverju; ólæti og annað).. Af hverjum bönnum við ekki bara svörtu fólki að tjalda næsta ár eða banna fólki í hjólastólum að vera í miðbænum vegna þess að þau taka meira pláss...!
Það vantaði allan þennan mannskap í bæjinn 18-23ja! Ég veit um heimilisföður sem er frændi minn á miðjum aldri sem hýsti 9 ókunnuga stráka frá RVK af því að löggan meinaði þeim að tjalda á einhverju mannlausu túni (en og aftur talið við mig ef þið viljið heyra alla söguna og báðar hliðar :p)... en ég vil eindregið að Turkmenbashi og co. hypji sig úr bæjarstjórninni og fari að hjálpa til við einhverskonar aðrar Apartheid stefnur annarsstaðar í heiminum þar sem þau eru velkomin! Einnig stórtöpuðu verslunar eigendur á þessu!
Jæja ekki meira í bili... teljum saman niður til Rhodos... og þau sem ekki farið þangað..well..haha!
Gunnar Örn Magnússon

Yippee-Ki-Yaytown!

07. júlí 2007 klukkan 21:57
Vill benda á slappan haus á blogginu! Hey...what can you do?!
Byrjum á því helsta...spurning að hafa inngang af blogginu? Let's!

  • Hvað er á döfinni?
  • Af hverju hata ég Geir Ólafs, Þorgrím Þráinsson og Bubba Morthens!
  • Lokaorð!
  • P.S. Er Ty Pennnington líkur David Hasselhoff?
Ég er á Mývatni og nóg að gera! Endalaust magn af túristum, er ekki hægt að dreyfa þessu liði á landsbyggðina. Já og ég þjónaði danska karlalandsliðinu í fótbolta í gær!
Peter "Smikel" (fyrrum markvörður í Man.Utd) var ekki þarna eða gaurarnir í Liverpool... samt sem áður töff því þetta voru "held ég" gaurarnir sem unnu Ísland á sínum tíma 14-2....Þekki það ekki!
Fer svo til DK/DE ca. 20. júl og kaupi mér myndavél áður... papparazzi vél eins og Árný kallar það... maður segir svona!
Svo ég fylgi nú inngangnum þá ætla ég að koma inn á mestu hrokagikki, sjálfumglöðustu menn á þessu landi!
Byrjum á hinum hæfileikalausa deadbeat Geir Ólafs... mér skilst að hann sé í hávegum hafður í leiklistarskólanum... Hann er ekki góður söngvari, hann fór einmitt til the Big Apple til að "make it big" reyna "skiluru" að verða eins og Sinatra, Martin og þeir.. Hann drullaði á sig "skilst mér". Svo átti hann líka að hafa falsað eitthvað meðmælenda bréf til Nancy Sinatra, man ekki samhengið en Geir H. Haarde átti að hafa skrifað það! LOOSER! Fregnir herma að hann kaupi sér meðaljóns jakkaföt og saumi "knock-off" vörumerki á...hversu lame! HVERSU LAME!? Margar miðaldra konur væru æfar út í mig núna! En hann er líka með svona hrokaútlit og Þorgrímur Þráinnsson! Þá er ég að tala um eitt ákveðið útlit!
ÞETTA! Þeir eru fullorðnir menn for ****'s sake!


Ég meina það... Nú vona ég að fólk sé hlægjandi!

Ég veit nú ekki hvar á að byrja á þessum! Þessi er verri... Þetta er hrokafíflið sem var einu sinni með FH eða álíka og var í fótbolta og svona... jæja það er allt í lagi (farið að hljóma eins og ég sé eitthvað bitur í þessa gutta...it gets better).. Hann skrifaði lélegar bækur eins og "Tár bros og takkaskór", las þá bók... átti að vera svona bók sem krakkar gætu svona "relate to".. Ekk góð bók að mínu mati! Já ég las hana þá sem segja "Gunni hefur aldrei lesið heila bók!"
Nú fékk hrokinn í honum til að skrifa aðra bók, svona sjálfshjálparbók það er verstu bækurnar! Mæli frekar með Mein Kampf, Anarchist Cookbook eða Depill... meira vit meiri lærdómur! En bókin fjallar um það hvernig á að rækta hið fullkomna hjónaband og vera góður þáttakandi í hjónabandinu! Hvernig veit hann það!!!! Þetta er pura hroki!
Svo er það Bubbi! Ég segi að Íslendingar taki sig saman í andlitinu og beiti old-school hópþrýstingi á kappann... jú sjáiði til.. Þegar Ásbjörn Morthensen dópaði gerði hann þokkalega góða tónlist! Núna keyrir hann um á slyddujeppa sem mengar rosalega..síðast þegar ég vissi, hann semur væmin ástarlög, selur tryggingarfélagi útgáfuréttinn á lögunum sínum og svo samdi hann eitt lag um daginn um hversu mikið hann er móti stórframkvæmdum. Lagið mátti sjá í þættinum henner Sigríðar einhvern tíman held það hafi verið í Örlagadeginum. Þetta er maður sem keyrir á með mest mengandi jeppum á markaðnum... Þetta er hræsni! Bubbi, farðu aftur í dópið..fyrir okkur hin :p...

Svo er komið að líkum einstaklingum... getur verið að þetta sé þvæla því mér datt þetta bara í hug áðan! Ty Pennington (Extreme Makeover Home edition) og David Hasselhoff (Baywatch o.fl)

Kannski tóm þvæla...
Komið nóg af þvælu í bili!

P.s. Kevin Bacon á afmæli á morgun... líka ég!

Smáa letrið: Skoðanir mínar á mönnunum hér að ofan er byggðar á litlum rökum og fáum staðreyndum. Ég þekki þá ekki neitt en þetta er mitt álit, afsakið mig en þetta finnst mér.. feel obligated to comment!
Gunnar Örn Magnússon

Í guðshúsi!

11. júní 2007 klukkan 16:00
Hausinn á blogginu er vel við hæfi... ég sit hér í skrifstofunni hans pabba upp í kirkju og er að læra fyrir Náttúrufræði 103 sem ég féll í á síðustu önn. Skrifa hér með bleki því blý er ekki til í bækurnar og reyni að troða þessu inn fyrir skelina á mér. Ég náði annars öllu sko.
Ég hef voða lítið að segja er að þessu eiginlega til að læra ekki... er samt búinn að vera duglegur í 2 tíma. Hellt mér upp á kaffi og kózy.
Helgin, fínt að koma inn á hana (mér líður btw eins og ég sé að skrifa útfararæðu ekki eins gaman og allir halda, veit heldur ekki eiginlega af hverju)... en já kannski ég geri hana í punktum.
  • Fékk nýju penthouse íbúðina hjá afa... sem var tær snilld!
  • Fór í partý.
  • Baldur týndist.
  • Hefði viljað dansa meira en ég gerði.
  • Var í sólbaði með Árna og Baldri í 3 tíma...ca.
  • Lærði ekkert!
  • Drakk of lítið.
Þetta er án efa leiðinlegasta blogg sem birst hefur hérna... eflaust geta einhverjir glott út í annað. Ef ekki þá verður bara að hafa það því lífið er ekki dans á rósum. Cheers!
Gunnar Örn Magnússon